Moggalygarnar halda áfram

Hér eru aðeins staðreyndir.

Hér eru aðeins staðreyndir.

Ekki lærðu ritstjórn og blaðamenn MBL neitt á rangfærslum sínum og lygum í síðustu viku þegar þeir héldu því fram að þingmenn Pírata væru skrópagemlingar sem nenntu ekki að mæta á fundi í þeim nefndum sem þeir ættu fulltrúa í því í ljós kom þegar málin voru skoðuð, að Píratar reyndust í fámenni sínu á alþingi, aðeins með þrjá fulltrúa, vera með einna bestu mætinguna þegar upp var staðið meðan flokkar hafa á að skipa allt að fjórum sinnum fleiri þingmönnum reyndust í raun vera skrópagemlingarnir.
Þetta sanna tölulegar staðreyndir sem hafa verið teknar saman.

Hvað eftir annað er Mogginn, ritstjóri þess áróðurs og lygasnepils ásamt illa gefnum blaðamönnum þess, staðin að því að ljúga að lesendum sínum, koma með rangar upplýsingar og oftar en ekki hreinlega upplognar.

Kanski heldur ritstjórinn að hann sé að koma höggi á Pírata með þessu en raunin er einfaldlega sú að hann gerir ekkert annað en dýpka holuna sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn ofan í og í hamaganginum og hatrinu sem hann ber til frjálsrar umræðu og lýðræðishugsjónar í landinu sem Píratar standa fyrir, þá er hann bara að hjálpa til við að auka fylgi við þá meðan hann rústar trúverðugleika eigin flokss og þess fólks sem hann telur sig vera að verja með því að bera á borð falsaðar og upplognar “fréttir” sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.

Síðan hafa varðhundarnir í heimsku sinni með Palla Vill fremstann í flokki komið geltandi og gjammandi á neikvæðu fréttirnar, spunnið upp ótrúlega heimskulega pistla á bloggi sínu, pistla sem hafa verið teknir og tættir sundur með staðreyndum þangað til varðhundarnir flýja umræðuna og reyna að láta pistla sína falla í gleymsku með því að skrifa eins marga og þeir geta til að fela eftir sig skítinn.
En þeir eins og ristjóri moggans eru alveg jafn duglegir við að drulla upp á bak, því ekki er einn pistillinn fallinn i gleymsku þegar ný skítahrúga skríður upp eftir bakinu á þeim.

Píratar hafa hvað eftir annað tekið moggalygarnar og troðið þeim ofan í kokið á ritstjóranum með skotheldum rökum og tölulegum staðreyndum.


Mogginn birtir nýja frétt um nefndar”skróp” pírata

Duglegustu þingmenn sem sitja á alþingi í dag. MYND: Skjáskot.

Duglegustu þingmenn sem sitja á alþingi í dag.
MYND: Skjáskot.

Mbl.is hefur birt nýja frétt af meintu nefndarskrópi Pírata þar sem fyrri frétt þeirra var tekin og tætt í sundur með svo skotheldum rökum að MBL var ekki stætt á öðru en birta leiðréttingu á bullinu sem þeir settu á forsíðu moggans í morgunn.

Í fréttinni eru raktar ástæður, MEÐ SKÝRUM RÖKUM fyrir því hvers vegna nefndarsetur þingmanna eru jafn gloppóttar og sagt var, en þegar aðeins þrír þingmenn þurfa að mæta á fundi í átta fastanefndum auk annara, þá verða þeir hreinlega að forgangsraða tíma sínum.

Í fréttinni segir meðal annars:

For­gangs­röðun á tíma þing­mann­ana er flókið verk­efni þar sem þeir eru bara þrír og því óger­legt að mæta allstaðar. Þing­menn­irn­ir hafa t.d. lagt áherslu á að vera dug­leg­ir að hitta fólk sem til þing­mann­ana leita með hin ýmsu mál eða fólk sem býr yfir þekk­ingu sem þing­menn­irn­ir þurfa að afla sér. Pírat­ar eru vand­lát­ir á tíma sinn og er mikið í mun að for­gangsraða rétt til að ná sem mest­um ár­angri. Ekk­ert bend­ir til að þing­menn Pírata standi ekki und­ir þeim mark­miðum.

Þeir sem taka ekki svoleiðis rökum og halda áfram að bera út svona þvætting eins og mogginn sendi frá sér í morgunn, þurfa heldur betur að fara að hugsa sinn gang og sína staðsetningu í framtíðinni.
Hvort þeir eigi frekar heima í hundabúri en meðal almennings.


Ekki mun hundspottið, Palli V. blogga um þetta.

Enda hentar það honum ekki.  Hann er búinn að blogga um lélega mætingu pírata og það er það eina sem hann vill sjá og heyra.
Hitt hentar hundspottinu og viðhlæjendum hans.

„For­gangs­röðun á tíma þing­mann­ana er flókið verk­efni þar sem þeir eru bara þrír og því óger­legt að mæta allstaðar. Þing­menn­irn­ir hafa t.d. lagt áherslu á að vera dug­leg­ir að hitta fólk sem til þing­mann­ana leita með hin ýmsu mál eða fólk sem býr yfir þekk­ingu sem þing­menn­irn­ir þurfa að afla sér. Pírat­ar eru vand­lát­ir á tíma sinn og er mikið í mun að for­gangsraða rétt til að ná sem mest­um ár­angri. Ekk­ert bend­ir til að þing­menn Pírata standi ekki und­ir þeim mark­miðum.“


mbl.is Þurfa að vera á mörgum fundum í einu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfsannleikur og varla það

Hvernig eiga þrír þingmenn að geta verið á allt að þrem til fjórum stöðum í einu?

Þessi "frétt" er svo mikil lygaþvæla og bull að maður á varla til orð yfir svona vinnubrögðum.

Nánar hér.


mbl.is Píratar mæta verst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn segir ekki allan sannleikan

Hálfsannleikur moggans. MYND: Skjáskot.

Hálfsannleikur moggans.
MYND: Skjáskot.

Það er ömurlegt í alla staði að horfa upp á hvernig sumir fjölmiðlar leika sér að því, samviskulaust, að ljúga hreinlega að lesendum.  Ekki síst á degi sem þessum þegar fjölmiðlakönnun er í gangi og Morgunblaðinu dreift, óumbeðið, í hvert hús á höfuðborgarsvæðinu, en þá er stóra áróðursmaskínan sett í gang þar sem hálfsannleikur í besta falli og í versta falli áróðurslygarnar fá að flæða eins lapþunnur hænsnaskítur yfir landsmenn.

Í dag er ráðist á Píratapartíið með svo svæsnum áróðri að þeir sem hafa fylgst með því sem er að gerast á alþingi, eru meira og minna öskureiðir yfir þeim lygum sem blaðamaður lætur frá sér í þessari frétt.  Staðreyndin er sú, (sem fæstir hafa kanski áttað sig á) að það eru aðeins þingmenn sem mega vera áheyrnarfulltrúar í nefndum og þegar það eru bara þrír þingmenn í þingflokki en átta nefndir sem þessir þrír þurfa að sinna, þá eru svona “fréttir” lítt marktækar.

Aðalheiður Ámundadóttir útskýrir þetta ágætlega.

Þingmenn Pírata skipta á milli sín setu í átta fastanefndum auk forsætisnefndar, Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins, þingskapanefndar og fleiri nefnda. Þingmennirnir geta því oft þurft að vera á tveimur stöðum í einu. Jón Þór leggur t.d. mun meiri áherslu á að mæta á fundi í atvinnuveganefnd eða efnahags- og viðskiptanefnd þar sem hann er áheyrnarfulltrúi fremur en í fastanefnd sína; umhverfis og samgöngunefnd.

Þingmennirnir fara vandlega yfir allar dagskrár nefndafunda og forgangsraða tíma sínum og hvaða fundi skuli mætt á eftir því hvað er á dagskrá funda hverju sinni. Forgangsröðuninni liggur til grundvallar grunnstefna og grunngildi flokksins. Þingmennirnir reyna þannig ávallt að að vera þar sem dagskrárliðir hafa snertiflöt við grunnstefnu Pírata hvort heldur er til góðs eða ills.

Forgangsröðun á tíma þingmannana er flókið verkefni en þeir eru bara þrír og því ógerlegt að manna markmið um að vera ‘on top of everything’ og mæta allstaðar.

Þegar fjölmiðlafólk starfar með þeim hætti sem gert er á Morgunblaðinu, þá hlýtur maður að spyrja sig um siðferðið hjá þeim.  Allir sem hafa fylgst með vita hvernig siðferði ritstjórans er háttað og það skilar sér að sjálfsögðu á síður blaðsins því blaðamenn sem eru undir stjórn slíks ritstjóra senda ekki frá sér efni sem honum er ekki þóknanlegt.

Trúverðugleiki slíks fjölmiðils og þess fólks sem þar vinnur verður aldrei annað en dregin efa og það er langt síðan allt sæmilega vel gefið fólk í landinu gafst upp á að trúa nokkru af því sem stendur í mogganum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband