Siðblindur skíthæll sem svíkur 2207 kjósendur flokksins
9.10.2021 | 17:37
Það er lítið um þennan skíthæl að segja annað en það að hann hefur nákvæmlega enga mannkosti til að bera.
Siðblindur, óheiðarlegur og algjör drullusokkur.
Þetta staðfestir bara einu sinni enn að það þarf að herða reglur um þingmenn sem segja sig úr flokkum á þann hátt að með því að yfirgefa þann flokk sem þeir voru kosnir á þing fyrir þá missi þeir sæti sitt á þingi og varamaður tekur við.
Þetta gerðist líka eftir síðustu kosningar þegar tveir þingmenn Flokks fólksins voru reknir úr flokknum eftir setu sína á Klausturbar þegar þeir áttu samkvæmt þingsköpum að vera í þingsal, þar sem þeir létu móðan mása á verulega niðrandi hátt um starfsfélaga sína, konur og minnihlutahópa í samfélaginu og náðist upptaka af öllu saman sem sýndi hvaða innri mann þeir höfðu að geyma.
Síðan voru það tveir þingmenn VG sem sögðu sig úr flokknum og var annar þeirra utan flokka mest allt kjörtímabilið en gekk svo til liðs við Pírata en hin til Samfylkingarinar.
Báðir hefðu þessir þingmenn átt að víkja af þingi og varamenn þeirra að taka við enda væri það í anda lýðræðis en ekki þess lýðsskrums sem þeir þingmenn viðhöfðu með flokkaflakki sínu.
En að yfirgefa flokk sinn tveim vikum eftir að hafa verið kosinn á þing er slíkur skíthæls og drullusokksháttur að aðeins gjörsamlega siðblindir drullusokkar gera slíkt og spila sig svo fórnarlömb þegar háttsemi þeirra er gagnrínd.
Persónulega held ég að forseti íslands ætti að ógilda þessar kosningar og boða til nýrra kosninga sem allra fyrst.
Þá geta kjósendur Miðflokksins kastað þessu siðblinda hræi þangað sem hann á heima ásamt Ernu Bjarnadóttur sem nákvæmlega sama siðblinda draslið og Birgir.
![]() |
Birgir skilur við Miðflokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fáir öryrkjar fá 44.000 krónur
12.12.2019 | 14:44
Það eru bara einstaka og örfáir öryrkjar sem fá fullan jólabónus frá TR því þetta er allt tekju og eignaskert og svo tekur skatturinn sitt að auki.
Hér eru tenglar á tvær greinar sem ásamt "launaseðli" öryrkja sem sýna staðreyndinar.
Því svo hataði ríkisstjórnin öryrkja
![]() |
Jólabónusinn til háborinnar skammar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þarf verkamaður að taka þátt í kostnaði við endurnýjun tækja?
17.1.2017 | 09:06
Heimtufrekja og óbilgirni útgerðana gagnvart sjómönnum er með hreinum ólíkindum svo ekki sé meira sagt.
Hvernig þætti skrifstofumanninum ef hann þyrfti að taka þátt í kostnaði við endurnýjun tölvubúnaðar, skrifborða, stóla og annara innanstokksmuna á sínum vinnustað?
Eða ef verkamaðurinn þyrfti að taka þátt í olíukostnaði á gröfunum og bílunum hjá verkatakanum sem hann vinnur hjá? Eða kostnaði við kaup á nýjum tækjum?
þetta er það sem sjómenn þurfa að taka á sig og finnst ykkur það sanngjarnt eða eðlilegt meðan eigendur útgerðana stinga tugum eða hundruðum milljarða í eigin vasa?
Spáið aðeins í þessu.
![]() |
Viðræðurnar eru á viðkvæmum punkti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Blekkingar fjármálaráðherra halda áfram.
11.12.2015 | 20:27
Það er alveg skelfilegt að þessi maður hlusti ekki fólkið sem þarf að lifa af á 178 þúsund krónum á mánuði og að það eigi að gera svo rosalega vel við þá á árinu 2016 með því að hækka bæturnar upp í 192. þúsund krónur á mánuði.
Þú sem þetta lest, gætir þú lifað af þeim tekjum?
Hér er búið að tæta öll þessi rök Bjarna Ben í rusl og það má lesa þetta líka og þetta og að lokum þetta hérna.
Það er löngu komin tími til að fólk fari að vakna og sjá hvernig þessir aumgingjar í ríkisstjórnarflokkunum nota prósentur til að hreykja sér af því að hækka bætur lífeyrisþega en þegar talað er um útgjöldin hjá ríkinu, þá skal sko gjamma eins hátt og hægt er um milljarða á milljarða ofan.
Þessi ríkisstjórn verður að víkja.
![]() |
Markvisst unnið að bættum kjörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lygaþvættingur MBL heldur áfram
23.5.2015 | 11:08
Maður veltir fyrir sér hvaða tilgangi svona "fréttir" þjóna þegar það er margbúið að sanna að upplýsngarnar sem MBL setur fram eru í þeim eina tilgangi að reyna að sverta og koma óorði á Pírta.
Síðan koma heilalausir varðhundarnir geltandi á svona fréttaflutning með sínar spekúlasjónir þrátt fyrir að hafa verið kafskotnir hvað eftir annað með rökum um hið gagnstæða
En heimskan á sér engin takmörk.
Meira um þetta hérna ásamt staðreyndum.
![]() |
Píratar nýttu 45% nefndarfundardaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |