Meira um svik hinnar ,,norrænu velferðarstjórnar" við alraða og öryrkja
12.1.2013 | 11:59
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni um málefni aldraðra og öryrkja undanfarin misseri en er öllum ljóst sem fylgjast með þeim málum og þá sér í lagi þeim sem hafa ekki aðrar tekjur en þeim er skammtað af ríkinu að þessir þjóðfélagshópar hafa verið sviknir hvað eftir annað um þær hækkannir sem þeim var lofað þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við hér eftir síðustu kosningar. 10. janúar síðastliðin reit Guðbjartur Hannesson ,,velferðarráðherra" bloggpistil á DV sem er svo stútfullur af rangfærslum og já, hreinum og klárum lygum að það er leitun að öðru eins nema ef vera skyldi í ritstjórnarpistlum útgerðarsnepilisins í Hádegismóum. Pistilinn kallar Gubbi: ,,Gott fólk, betra samfélag fyrir alla" og leggur framboðsfnykinn af honum langar leiðir. Fnykur sem annars finnst aðeins úr holræsum borga og bæja sem lengi hafa verið hálf stífluð svo meira og minna rotinn og hálfrotinn skíturinn liggur þar í haugum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sami rassinn undir öllu þessu liði.
11.1.2013 | 19:58
Staðreyndirnar tala sínu máli í þessu sem og öðru.
Það er sami gauðdrullugi rassinn undir öllu þessu liði sem situr í valdastólunum hvaða flokki sem þeir telja sig til. Ekki er verið að vinna í þágu almennings í landinu frekar en fyrri daginn.
Ég var að horfa á forvitnilega þætti á Youtube í dag, á hundavaði reyndar en margt af því sem þar kemur fram má alveg heimfæra til nútímans.
Skora á fólk að horfa á þá hér.
![]() |
Seinkun veldur eldri borgurum vonbrigðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Loforðin sem Jóhanna gaf þegar hún tók við eru ekki hundaskítsvirði
10.1.2013 | 10:18
Þegar núverandi stjórn tók við völdum hér á landi var því lofað að ekki yrði vegið að þeim sem minnst hafa í tekjur og var þar vísað til lægstu launa, atvinnulausra, aldraðrað og öryrkja.
Allt þetta hefur þetta verið svikið, ekki bara einu sinni, heldur aftur og aftur þegar laga á kjör þessara hópa. Öryrkjar og aldraðir hafa verið látnir taka á sig mestu skerðingar og skuldabyrgðir útrásarvíkingina sem eru afleiðing stjórnarfars Sjálfstæðismanna á 18 ára valdaferli þeirra en svik núverandi stjórnar eru með öllu ófyrirgefanlegar. Fólk hér á landi á varla í sig eða á og margir eru langt undir hungurmörkum þó svo reglulega komi Jóhanna gjammandi inn á fjölmiðla með exel skjalið sitt sem segir allt annað.
Hún og aðirir ráðamenn ættu að reyna að komast af með minna en 150 þúsund á mánuði þegar búið er að rífa af fólki í skatta og endurgreiðslur.
![]() |
ASÍ mótmælir kjaraskerðingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svik við aldraða og öryrkja er aðalsmerki núverandi stjórnar
5.1.2013 | 13:17
Breytt 11.1.2013 kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sexy new year!
1.1.2013 | 15:19
Breytt 11.1.2013 kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)