Leikskólinn við Austurvöll

Betur að Birgitta hefði sagt þetta það hátt að leikskóladeildin í hliðarsalnum hefði heyrt það.

Ég fylgdist með þessu í morgunn og verð að segja fyrir mína parta að þeir sjálfstæðismenn sem tjáðu sig um rammaáætlunina geta engu svarað af því sem þeir eru spurðir, heldur reyna alltaf að sverta fyrri stjórn í þessu máli.
Katrín Júlíusdóttir kom upp og rak kjaftæðið svoleiðis ofan í sjallafíflin að ekkert stóð eftir af þeirra málflutningi nema skiturinn og skömmin á þeim sjálfum.

En þetta eru dæmigerð vinnubrögð sjallana.
Einræðistilburðir frá A til Ö í öllum málum eins og þeir séu alltaf hafnir yfir stjórnsýslulög, lög um störf alþingis og já, bara almennt yfir öll lög hafnir.

Svona viðhorf á bara ekki að fá að líðast í lýðræðisríki og stjórnarandstaðan þarf heldur betur að hysja upp um sig ullarbrókina með slitnu teyjuna og fara að ganga í að málin á alþingi verði löguð.

Ef ekki með góðu, þá með illu.

Minni svo að sjálfsögðu á hitt Svarthol hugans.


mbl.is „Bara steinhaldið kjafti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei Sigmundur. Þú þarft að læra.

%C3%BEj%C3%B3%C3%B0in-l%C3%A6riÞað er hreint með ólíkindum að hvernig æðsti embættismaður þjóðarinar og forsætisráðherra talar til yfirmanna sinna, fólksins í landinu.
Dónaskapurinn, hrokinn og hortugheitin sem þessi maður maður sýnir af sér er til háborinar skammar fyrir mann sem ætlast til þess að það sé yfir höfuð tekið mark á honum þegar hann heimtar að þjóðin læri af lekamálinu.

Mín persónulega skoðun er sú að Sigmundur Davíð snúi öllu á hvolf í málflutningi sínum og hann ætti að hugsa aðeins út í þá staðreynd að með framkomu sinni, hegðun og hvernig hann talar til fólksins í landinu, grefur hann aðeins undan sjálfum sér og flokknum og skaðar þetta litla mannorð sem hann á eftir.
Virðingu ber enginn heilvita manneskja til hans lengur.

Skora á fólk að lesa meira hér...


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggsíðan mín.

Sé að það er talsverð umferð á þessa síðu en þar sem ég hef ekki nennt að skrifa neitt hérna, þá hef ég skrifað eingöngu á vefinn minn.

Hægt er að sjá öll mín skrif með því að smella hér.


Aumur samningur og ASÍ til háborinar skammar.

Það er 4,5% verðbólga í landinu.
2,8% á lægstu laun eru í raun 2,3% kjaraskerðing.

Sjá hérna.


mbl.is Skref í átt að nýjum vinnubrögðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólöglegt niðurhal er ekki til

Það er frekar þreytandi og pirrandi að sjá hvernig fjölmiðlafólk og aðrir éta bullið frá Smáis bjálfunum upp og tala um ólöglegt niðurhal.  Það er ekkert til sem heitir ólöglegt niðurhal, aðeins er ólöglegt að dreifa höfundarréttarvörðu efni en engin lög til sem banna þér að sækja slíkt efni af netinu.

Sjá nánar hérna. 


mbl.is Margir vilja ekki borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband