Ólöglegt niðurhal er ekki til

Það er frekar þreytandi og pirrandi að sjá hvernig fjölmiðlafólk og aðrir éta bullið frá Smáis bjálfunum upp og tala um ólöglegt niðurhal.  Það er ekkert til sem heitir ólöglegt niðurhal, aðeins er ólöglegt að dreifa höfundarréttarvörðu efni en engin lög til sem banna þér að sækja slíkt efni af netinu.

Sjá nánar hérna. 


mbl.is Margir vilja ekki borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Menn tala um að það að stela höfundavörðu efni sé eitthvað nýtt á nálinni, þetta er búið að viðgangast í áratugi.
Menn tóku tónlist upp úr útvarpi yfir á kasettur hér áður fyrr og tóku upp heilu sjónvarpseríurnar á VHS.

The Critic, 25.10.2013 kl. 13:42

2 identicon

Orð að sönnu.

Ég man þá tíð sem maður var með 5-6 þáttaseríur á VHS böndum, svo var skipt við þá sem voru með Stöð2 og þá fékk maður að sjá það líka.

Við Íslandingar eigum bara að fá Netflix löglega, þá er málið úr söguni !

Af hverju berst Smáís ekki fyrir því frekar ?

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 25.10.2013 kl. 14:20

3 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Við Íslandingar eigum bara að fá Netflix löglega, þá er málið úr söguni !

Af hverju berst Smáís ekki fyrir því frekar ?

Það vill nú svo til að Smáís er að berjast fyrir Netflix, bara ekki alveg eins og við myndum vilja, þeir berjast með kjafti og klóm við að koma í veg fyrir að það komist hingað.... 

Halldór Björgvin Jóhannsson, 25.10.2013 kl. 14:23

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Af hverju í djöflinum er Netflix ólöglegt á Íslandi?

Né, hvernig spyr ég. Auðvitað af sömu ástæðu og alltaf: af því þeir segja það.

Ásgrímur Hartmannsson, 25.10.2013 kl. 16:19

5 Smámynd: The Critic

Netflix er ekki "ólöglegt" beint. Þeir hafa bara ekki haft áhuga á að bjóða upp á sína þjónustu á íslandi. Þetta er alveg eins og með Sky á sínum tíma, Smáís djöflaðist og vildi að Sky neitaði að taka við greiðslu frá íslenskum kortum. Þetta fór allt fyrir dóm og þá kom upp úr dúrnum að þeir höfðu ekkert fyrir sér, íslendingar mættu kaupa sér sjónvarpsáskrift hvar sem er í evrópu. Einhvða svipað á við um Netflix 

The Critic, 25.10.2013 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband