White trash or trailer-trash
1.12.2012 | 01:21
Fyrirsögnin vísar í það sem útleggst á íslensku ,,Hvítt rusl" og er þá verið að tala um fólk sem býr í hjólhýsagörðum í Ameríkuhreppi og er næst neðst í virðingarstiganum, rétt ofan við útigangsmennina og rónana sem lifa í ræsinu. Það er litið niður á þetta fólk og það er litið hornauga þegar það fer í verslanir eða sækir sér þjónustu eða eiginlega hvar sem það kemur. Gert að því grín og það niðurlægt á allan hátt.
Nú eru nokkrir þingmenn búnir að koma því svo fyrir, að í miðborg Reykjavíkur er stór grár kumbaldi vestan við Dómkirkjuna og er hann í daglegu tali nefndur Alþingishúsið. Þessi kumbaldi er ,,trailer" okkar íslendinga þó þar búi enginn. En það er líf þar. Þar starfar fólk sem er búið með hegðun sinni og framkvæmdum að gera sig að White-trash í augum okkar íslendinga og tók endanlega steininn úr í kvöld þegar Þingmennirnir Lúðvík Geirsson og Björn Valur Gíslason gengu til skiptis fram fyrir ræðustól Alþingis með spjald sem á stóð MÁLÞÓF og vísuðu spjaldinu í átt að sjónvarpsmyndavél sem í húsinu er meðan á ræðu Illuga Gunnarssonar stóð í kvöld.
Virðing fyrir þessu hvíta rusli er komin í núllpunkt og þjóðin vill þetta rusl burt. Það eru landsmenn sem borga launin fyrir þessa vesalinga sem eru komnir nánast neðst í virðingarstigan í þessu landi. Aðeins ræsisrotturnar og barnaníðingar standa þeim neðar og með sama áframhaldi ná þeir fljótlega á botninn.
Ég vona þingmanna vegna, að þeir fari nú að gera það sem þeir voru ráðnir af okkur lansmönnum til að gera en það er að vinna í okkar þágu en ekki haga sér eins og það heitir í Ameríkuhreppi, White Trash og hugsa um það eitt að púkka undir eigið rassgat.
![]() |
Báðir hafa orðið sér til minnkunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þunglyndi og geðhvarfasjúkdómar eru dauðans alvara.
26.11.2012 | 10:45
Þann 20. Okt síðastliðinn var dyrabjöllunni heima hjá mér hringt og fyrir utan stóð sóknarprestur staðarinn. Hún var komin til að tilkynna mér, að þá um nóttina hefði sonur minn, 19 ára gamall tekið sitt eigið líf þar sem hann var vistaður á Geðdeild Fjórðungs sjúkrahúss Akureyrar.
Heimurinn hrundi.
Ég ætla ekkert að lýsa því sem gerðist þar á eftir og það getur enginn sett sig í spor foreldris sem misst hefur barnið sitt með þessum hætti. Inni á stofnunn sem á að hjálpa fólki sem á við þunglyndi, kvíðaraskannir og geðsjúkdóma að etja.
Starfsfólkinu var illa bruðið og þeir sem voru á vakt þessa nótt þurftu á áfallahjálp að halda enda hlýtur það að vera skelfileg upplifun, að fólkið sem það á að vera hjálpa og vaka yfir tekst að fyrirfara sér með þessum hætti.
En hverjum er þá um að kenna?
Jú svarið er einfalt. Stjórnvöldum.
Stjórnvöldum sem skera niður í heilbrigðiskerfinu með þeim hætti, að ungmennum tekst að taka sitt eigið líf inni á stofnunum sem Ríkið rekur og BER ÁBYRGÐ Á!
Það er talað um að 30 til 40 sjálfsmorð séu framin á hverju ári hér á landi og það er 30 til 40 sjálfsmorðum of mikið og stjórnvöld sem eyðileggja heilbriðgiskerfið kerfisbundið með þeim hætti sem hefur verið stundaður síðustu 10 til 15 ár er algerlega óásættanlegur.
Meira að segja í ,,góðærinu" var skorið niður til helvítis af Sjálfstæðis og Framsóknarmönnum og eftir hrun hefur ástandið versnað margfallt.
Minnihlutahópar eins og geðfatlaðir og þeir sem eiga við þunglyndi að stríða eru verst settir í þessu þjóðfélagi. Þjóðfélagi hinnar ,,norrænu velferðar".
En hvað veldur þunglyndinu hjá almenningi?
Svarið er einfalt. Láglaunastefna, háir skattar og hreint og klárt okur á nauðsinjavörum og húsaleigu svo dæmi sé tekið.
Ómenntaður einstaklingur sem býr einn og er í fullri vinnu getur lifað sæmilegu lífi með því að vinna frá kl 7 á morgnanna til 22 á kvöldin alla daga vikunar en sá sem fær aðeins sína átta tíma fimm daga vikunnar nær varla endum saman.
Ísland er ekki land velferðar heldur hafta og þrælahalds og þannig verður það þangað til fólk hefur kjark til að rísa upp og krefjast kjara sem eru mannsæmandi.
Heilbrigðiskerfis þar sem skjúklingum er sinnt á mannsæmandi hátt og þeir sem eiga við geðræna sjúkdóma að stríða verður ekki hent út á götu af því þeir passa ekki inn í kerfið.
Á íslandi þarf að taka til hendinni og refsa þeim sem stela. Gildir þar einu hvort það er öryrkinn sem stelur sér súpupakka af því hann hefur ekki borðað í viku eða útrásarvíkingurinn, bankaeigandinn eða forstjórinn sem skutu tugum ef ekki hundruðum miljarða úr landi eftir að hafa ryksugað bankakerfið og sett þjóðina á hausinn. Það á jafnt yfir alla að ganga.
Meðan það gerist ekki, verður ekkert jafnræði í landinu, aðeins óréttlæti, illska og óbreytt ástand.
![]() |
Aukin ásókn í geðheilbrigðisþjónustuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þar sem hræfuglarnir garga!
17.11.2012 | 20:37
Vefurinn er AMX og dálkurinn heitir hjá þeim ,,Smáfuglahvísl" en almenningur með skynsemina í lagi kallar dálkinn sínu rétta nafni, ,,Hræfuglagarg".
Þarna fá þeir útrás vinirnir, sem aðeins heimskingjar og illa gefnir einstaklingar með enga sjálfstæða hugsun í hausnum, fylgja eins og tryggir hundar húsbónda sínum, þeir Hannes Hólmsteinn, Björn Bjarnason og margir fleiri hægri menn sem hafa enga samkennd með einum eða neinum nema sjálfum sér og innstæðum sínum í bankanum, hlutabréfaeignum sínum eða fjölda seðlana undir koddanum. Það má minna hræfuglana á eftirfarandi og það kemur fram í fréttinni sem hlekkað er við þessa bloggfærslu að þetta tíðkaðist jú líka í stjórnartíð Sjálfstæðismanna.
Þetta er þriðja árið í röð sem atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót, en áður hafði slík uppbót síðast verið greidd árið 2005.
Og hverjir voru svo við völd árið 2005?
Málflutningur sá sem stundaður er á AMX vefnum er að mestu leyti viðbjóður. Viðbjóðsleg skrif um fólk sem stendur höllum fæti í þjóðfélaginu, atvinnuleysingjar, öryrkjar, fólk með geðraskanair og fólk sem þarf á hjálp samfélagsins að halda en rætnin, illgirnin og lygarnar sem oft eru skrifaðar um fólk úr miðju og vinstri flokkunum í stjórnmálum er þó yfirgnæfandi.
Hvað er annars hægt að segja um svona skrif?
Smáfuglunum dettur ekkert í hug. Atvinnulausir eru heima við og geta þar hoft á sjónvarp með fjölskyldu sinni frá morgni til kvölds ef þeir svo vilja. Réttlætir það sérstaka uppbót?
Sjá hérna
Nei. AMX er vefur þar sem ákveðnir einstaklingar úr öfga hægri armi Sjálfstæðisflokksins skrifa undir nafnleynd. Einstaklingar sem aldrei á sinni aumu æfi hafa unnið ærlegt handtak en verið á ríkisjötunni nánast allt sitt líf, fæddir með silfurskeið í kjafti og gullgaffal í görn.
Þetta er aumt lið sem hefur það eina markmið í lífinu að ala á sundurlyndi fólksins í landinu því þeir sem fylgja stefnu þeirra, (þeir eru nú all nokkrir hér á blogginu og má nefna tvo þá allra verstu hérna, Jón Val Jensson og Heimi Fjelsted) sem lepja upp drulluna og skítinn sem lekur frá átrúnaðargoðum þeirra, (Guð er hjáguð þeirra) Davið Oddssyni og Hannesi Hólmsteini og dreifa óhroðanum og lygunum áfram og trúa því eins og nýju neti að þeir fari þar með allan sannleika sem hægt er að finna.
Með því að nota svona aumingjans grey, sem enga sjálfstæða hugsun hafa, tekst AMX og hægri öfga öflunum að halda áfram að ala á sundurlyndi meðal landsmanna. Áróðursmaskína Göbbels virkar enn í dag og einkunnarorðin; ,,segðu sömu lygina nógu oft því þá trúir fólk henni sem sannleika" virkar því alveg enn þann dag í dag eins og sést á öllum skrifum AMX, ritstjóra Mbl og öfga hægri línu Sjálfstæðisflokksins.
Góðar stundir.
![]() |
Fá greidda desemberuppbót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lyga og svikaparið Jóhanna og Steingrímur
14.11.2012 | 17:40
Það er þokkalegur andskoti að hafa slíkt fólk á þingi sem lýgur og svíkur eins og enginn sé morgunndagurinn. Jóhanna lofaði fyrir kosningar að ekki yrði ráðist að þeim sem lægstar hafa tekjurnar í þessu þjóðfélagi en það hefur hún allt svkið enda fer hún núna þegar þessu kjörtímabili líkur á feit eftirlaun á kostnað skattgreiðenda.
Nú er komið annað hljóð í strokkinn hjá stjórnvöldum því það skal skattleggja lífeyrisréttindi launafólks með sérstökum skatti sem á að nota í útboð seðlabanka til gjaldeyriskaupa.
Þetta er þvílík svívirða við vinnandi fólk að ekki eru til önnur eins fordæmi og óvíst að þetta standist stjórnarskrá lýðveldisins.
En við þetta vaknaði nátttröllið ASÍ og ákvað að loksins að gera eitthvað í málunum. En er það fyrir þá sem í raun eiga sjóðina? Það er að segja sjóðfélaga? Nei sennilega er formaðurinn bara orðinn skíthræddur um að missa þau góðu laun sem hann er á því hann segir meðal annars;
Umrædd skattlagning lendir einungis á lífeyrisréttindum fólks á almennum markaði þar sem ráðherrar, alþingismenn og þeir opinberu starfsmenn, sem aðild eiga að opinberu lífeyrissjóðunum, njóta ábyrgðar ríkis og sveitarfélaga.
Svikahyskið sem komst til valda með lygum, svikum og prettum ætti að skammast sín vegna þessa máls og eins hvernig þau hafa svikið allt sem þau lofuðu og svíkja enn.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Þið ærulausa lygahyski drullið ykkur frá þeim embættum sem þið luguð ykkur inn í og látið aðra taka við. Þið hafið rúið ykkur og flokka ykkar öllu trausti roðhænsnin ykkar og svikapakk.
![]() |
Reyna á lögmæti fyrir dómstólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Grjótkast úr glerkirkju
14.11.2012 | 12:06
Erfitt er að sjá annað en að þá sé barnið í reynd skráð utan trúfélaga, segir í umsögninni. Slík niðurstaða hlýtur að vera ófullnægjandi í tilviki þar sem barn á eitt foreldri sem stendur utan trúfélags og hitt foreldrið sem sé hluti af trúfélagi. Í þeim tilvikum getur það foreldrið sem stendur utan trúfélags á óbeinan hátt þröngvað afstöðu sinni á barn sitt í óþökk hins foreldrisins.
En er það þá ekki þvingun þegar foreldrið sem er í trúfélagi skráir barnið þeirra í það trúfélag í óþökk hins foreldrisins?
Það er ekki ein heilbrigð röksemd í þessari umsögn prestsins og í raun allt þetta bull í honum helbert kjaftæði öfgatrúarmanns sem sér ekkert rétt nema sínu heimskulegu og forpokalegu skoðun í þessu máli.
Það á að leyfa börnum að ráða þessu sjálfum þegar þau fara að nálgast fermingaraldurinn og þá geta þau staðfest nafn sitt og fermst hafi þau hug á því því það er ekkert annað en þvingun að skrá ómálga hvítvoðung í trúarsöfnuð hvað svo sem prestastéttin segir.
![]() |
Trúlausir þröngva afstöðu sinni á börn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)