Þar sem hræfuglarnir garga!

Vefurinn er AMX og dálkurinn heitir hjá þeim ,,Smáfuglahvísl" en almenningur með skynsemina í lagi kallar dálkinn sínu rétta nafni, ,,Hræfuglagarg".
Þarna fá þeir útrás vinirnir, sem aðeins heimskingjar og illa gefnir einstaklingar með enga sjálfstæða hugsun í hausnum, fylgja eins og tryggir hundar húsbónda sínum, þeir Hannes Hólmsteinn, Björn Bjarnason og margir fleiri hægri menn sem hafa enga samkennd með einum eða neinum nema sjálfum sér og innstæðum sínum í bankanum, hlutabréfaeignum sínum eða fjölda seðlana undir koddanum.  Það má minna hræfuglana á eftirfarandi og það kemur fram í fréttinni sem hlekkað er við þessa bloggfærslu að þetta tíðkaðist jú líka í stjórnartíð Sjálfstæðismanna.

Þetta er þriðja árið í röð sem atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót, en áður hafði slík uppbót síðast verið greidd árið 2005.

 Og hverjir voru svo við völd árið 2005?

Málflutningur sá sem stundaður er á AMX vefnum er að mestu leyti viðbjóður.  Viðbjóðsleg skrif um fólk sem stendur höllum fæti í þjóðfélaginu, atvinnuleysingjar, öryrkjar, fólk með geðraskanair og fólk sem þarf á hjálp samfélagsins að halda en rætnin, illgirnin og lygarnar sem oft eru skrifaðar um fólk úr miðju og vinstri flokkunum í stjórnmálum er þó yfirgnæfandi.

Hvað er annars hægt að segja um svona skrif?

Smáfuglunum dettur ekkert í hug. Atvinnulausir eru heima við og geta þar hoft á sjónvarp með fjölskyldu sinni frá morgni til kvölds ef þeir svo vilja. Réttlætir það sérstaka uppbót?
Sjá hérna

 Nei.  AMX er vefur þar sem ákveðnir einstaklingar úr öfga hægri armi Sjálfstæðisflokksins skrifa undir nafnleynd.  Einstaklingar sem aldrei á sinni aumu æfi hafa unnið ærlegt handtak en verið á ríkisjötunni nánast allt sitt líf, fæddir með silfurskeið í kjafti og gullgaffal í görn.

Þetta er aumt lið sem hefur það eina markmið í lífinu að ala á sundurlyndi fólksins í landinu því þeir sem fylgja stefnu þeirra, (þeir eru nú all nokkrir hér á blogginu og má nefna tvo þá allra verstu hérna, Jón Val Jensson og Heimi Fjelsted) sem lepja upp drulluna og skítinn sem lekur frá átrúnaðargoðum þeirra, (Guð er hjáguð þeirra) Davið Oddssyni og Hannesi Hólmsteini og dreifa óhroðanum og lygunum áfram og trúa því eins og nýju neti að þeir fari þar með allan sannleika sem hægt er að finna.

Með því að nota svona aumingjans grey, sem enga sjálfstæða hugsun hafa, tekst AMX og hægri öfga öflunum að halda áfram að ala á sundurlyndi meðal landsmanna.  Áróðursmaskína Göbbels virkar enn í dag og einkunnarorðin; ,,segðu sömu lygina nógu oft því þá trúir fólk henni sem sannleika" virkar því alveg enn þann dag í dag eins og sést á öllum skrifum AMX, ritstjóra Mbl og öfga hægri línu Sjálfstæðisflokksins.

Góðar stundir.


mbl.is Fá greidda desemberuppbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jack Daniel's

Smá viðbót fengin frá DV.

Nafnlaus viðmælandi DV sem hafði fylgst með vefnum til fjölda ára sagði að þar hafi lengi vel viðgengist „markviss fasistaáróður“. Honum blöskraði að vefur þar sem helsti markhópurinn eru börn og unglingar væri notaður til þess að koma því á framfæri sem hann sagði vera „einhliða og hatursfullar skoðanir.“

Fjölskyldutengsl
Vefmiðlun ehf. sem meðal annars á og rekur áróðursvefinn amx.is, flutti lögheimili sitt að Hádegismóum 2 í Reykjavík nýverið, en þar er starfsemi Morgunblaðsins einnig hýst. DV hefur fjallað töluvert um AMX síðustu ár en hér á eftir verður stiklað á stóru úr þeirri umfjöllun. Vefmiðlun ehf. er í eigu Friðbjörns Orra Ketilssonar og Arthúrs Ólafssonar en Friðbjörn Orri er titlaður útgefandi AMX-vefjarins. Vefmiðlun ehf., rekstraraðili vefmiðilsins AMX, rekur að minnsta kosti átta aðra vefmiðla á Íslandi. Þar á meðal miðla sem eru vinsælir á meðal barna og unglinga eins og Leikjanet og B2.is.

Tengdafaðir Friðbjörns Orra er Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, náinn viðskiptafélagi og fjölskylduvinur Guðbjargar Matthíasdóttur, eiganda Morgunblaðsins. Hann hefur í gegnum tíðina gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir félög í eigu Guðbjargar. Þá er Gunnlaugur náinn vinur Davíðs Oddssonar fyrrverandi seðlabankastjóra og var til að mynda veislustjóri í fimmtugsafmæli hans.

Og þar höfum við það.

Jack Daniel's, 17.11.2012 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband