Píratar á fljúgandi siglingu
10.4.2013 | 09:00
Smári McCarthy, kapteinn Pírata, segir að fyrsta verk Pírata á Alþingi verði að auka gagnsæi og opna bókhald ríkissins. Píratar vilji að almenningur fái að taka ákvarðanir um öll málefni sem varði þá sjálfa og til þess að hann geti gert það verði það að hafa aðgang að upplýsingum. Upplýsingum sem þegar eru til á tölvutæku formi, aðeins þurfi að gera þessar upplýsingar sýnilega almenningi á netinu.
Um leið og almenningur sér í hvað peningunum hefur verið eytt þá er hægt að opna frekar á fjárlagagerðina þannig að almenningur fái að taka meiri þátt í að ákveða hvernig við eyðum skattpeningunum okkar, segir Smári.
Þetta er nefnilega alveg rétt og þar með er hægt að hafa betri yfirsýn á fjármálum ríkisins, sjá hvar og hvernig fjármunum er eytt og hvort ákvarðannir um aðgerðir í fjármálum eru skynsamar eða rangar. Þannig getur almenningur komið með tillögur um hvað má betur fara og hvaða leiðir eru skynsamlegar í hverju máli fyrir sig hvort heldur það eru menntamál, heilbrigðismál, félagsmál og svo framvegis.
Smári segir pírata ekki vera til hægri eða til vinstri í stjórnmálum, þeir séu ekki í neinum hólfum. Það sem við erum að segja er að það sem við höfum séð í gegnum tækniþróun síðustu ára er gjörsamlega að breyta því hvernig við getum búið sem samfélag. Við höfum miklu meiri möguleika á að taka skynsamlegri ákvarðanir, fyrir minni pening og gera hlutina betur.
Nánari upplýsingar má fá með því horfa á viðtal við Smára frá því í gær með því að smella hérna.
Framsókn eykur forskotið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
já væri ekki bara fínt að þeir mynduðu stjórn með Framsókn.Framsókn sæji um aðal hituna Og Píratarnir sæju um að fylgjast með hvernig Framsókn færu með peningana.
Jósef Smári Ásmundsson, 10.4.2013 kl. 10:55
Líst á margt gott hjá Pírata partýinu en er þó ekki allskostar ánægður með þá. En það er bara mitt.
Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.