Kvótakerfið og útgerðirnar stjórna á bak við tjöldin.

Það er bara staðreynd að á íslandi stjórnar SFS, útgerðarmafían á bak við tjöldin og margir stjórnmálamenn eru aðeins strengjabrúður þeirra og málpípur og þar með svikarar við fólkið i landinu.

Dæmi 1:
Ég á hús sem eg skulda ekkert í, sem sé hreina eign.
Einhver maður út í bæ veðsetti húsið mitt, án leyfis frá mér, fór í bankann fékk lán út á húsið mitt.
Síðann liðu nokkur ár þá fékk eg tilkyningu frá bankanum þess efnis, að sá sem veðsetti húsið mitt hefði fengið lánið niðurfelt.
Lánið féll á mig.

Þeir sem vilja lesa meira og fræðast aðeins betur ættu að smella hérna.


mbl.is Fátt komi í veg fyrir verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í fyrri fréttinni er rangt farið með andskoti margt.

Ég er íbúi í blokkinni þar sem þessir atburðir urðu og ég hreinlega rasandi brjálaður yfir svona dæmalausu bulli eins og þessi "fréttamaður" leyfir sér að láta frá sér í fréttinni.

Lygar, æsifréttamennska og hreint og klárt bull og þvæla er það sem er uppistaðan í fréttinni og þar að auki er rangt farið með staðarnafnið þar sem þetta gerðist.

Svona vinnubrögð eru dæmigerð fyrir letingja sem hafa hvorki metnað eða getu til að skrifa fréttir.

Ég fjalla mun ýtarlegar um þetta hérna. og hvet fólk til að lesa um staðreyndir málsins.


mbl.is Almennir lögreglumenn vopnuðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangfærslur, ýkjur og lygar í þessari svokölluðu frétt

Ég er íbúi í blokkinni þar sem þessir atburðir urðu og ég hreinlega rasandi brjálaður yfir svona dæmalausu bulli eins og þessi "fréttamaður" leyfir sér að láta frá sér í fréttinni.

Lygar, æsifréttamennska og hreint og klárt bull og þvæla er það sem er uppistaðan í fréttinni og þar að auki er rangt farið með staðarnafnið þar sem þetta gerðist.

Svona vinnubrögð eru dæmigerð fyrir letingja sem hafa hvorki metnað eða getu til að skrifa fréttir.

Ég fjalla mun ýtarlegar um þetta hérna. og hvet fólk til að lesa um staðreyndir málsins.


mbl.is Sérsveitin yfirbugaði konuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru mannréttindi brotin á fólki í dag

Enn einu sinni kemur þetta til umræðu í þjóðfélaginu og inni á alþingi þrátt fyrir að það sé svo marg búið að tyggja þetta ofan í þennan aumingjans ræfil, þennan svokallaða forsætisráðherra í ræðu og riti, hvað eftir annað síðustu tvö ár.

Það er náttúrulega ekkert annað en mannréttindabrot að ákveðnir þjóðfélagshópar eigi ekki fyrir mat eða lyfjum út mánuðinn og það setur líka spurningamerki við aðgerðir stjórnvalda þegar gefin eru út af velferðarráðuneytinu, neysluviðmið fyrir fólk en stjórnvöld greiða svo ákveðnum þjóðfélagshópi rúmlega 50% lægri upphæð heldur en hægt er að komast af á.

Ég hef margoft skrifað um þetta og gagnrýnt stjórnvöld og ég ætla að halda því áfram enda eru svona yfirlýsingar ekkert annað en óþveraháttur illa gefina manna og kvenna sem hafa hvorki sómatilfiningu né siðferðiskennd til að bera í störfum sínum og allt þeirra blaður innantómt skrum og lygar meðan ekkert er gert til að laga ástandið hjá þeim verst settu.

Skora á fólk að smella á tenglana hér að ofan og lesa það sem þar hefur verið skrifað.


mbl.is Grunnlaun dugi fyrir nauðsynjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það langar engan að vera sjúklingur

Það langar heldur engan að missa heilsuna og verða óvinnufær þó svo til sé svo, bæði einstaklega leiðinlegt og vitlaust fólk sem virkilega heldur því fram.

Það gerir það enginn að gamni sínu að verða öryrki og bótaþegi, það er nóg að fólk lesi sér til um hvað þessi þjóðfélagshópur hefur það í raun skítt hér á landi svo allir með greind yfir stofuhita átti sig á því.

Það er engin óskastaða að fá aðeins 180 þúsund í hendurnar, (jafnvel minna) um mánaðarmót og þurfa að láta það standa undir öllum útgjöldum mánaðarins.

Það sér það hver heilvita manneskja að það er ekki hægt.

Og af því ég segi heilvita, þá getið þið giskað á hvaða álit ég hef á stjórnmálamönnum sem ætlast til að fólk komist af á þessum tekjum.


mbl.is Langaði aldrei að verða sjúklingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband