Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2017
Þarf verkamaður að taka þátt í kostnaði við endurnýjun tækja?
17.1.2017 | 09:06
Heimtufrekja og óbilgirni útgerðana gagnvart sjómönnum er með hreinum ólíkindum svo ekki sé meira sagt.
Hvernig þætti skrifstofumanninum ef hann þyrfti að taka þátt í kostnaði við endurnýjun tölvubúnaðar, skrifborða, stóla og annara innanstokksmuna á sínum vinnustað?
Eða ef verkamaðurinn þyrfti að taka þátt í olíukostnaði á gröfunum og bílunum hjá verkatakanum sem hann vinnur hjá? Eða kostnaði við kaup á nýjum tækjum?
þetta er það sem sjómenn þurfa að taka á sig og finnst ykkur það sanngjarnt eða eðlilegt meðan eigendur útgerðana stinga tugum eða hundruðum milljarða í eigin vasa?
Spáið aðeins í þessu.
![]() |
Viðræðurnar eru á viðkvæmum punkti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)