Smurolía til matargerðar?
15.1.2012 | 18:46
Er það ekki bara nákvæmlega sami samanburður eins og að segja að iðnaðarsaltið sé ekkert hættulegt. Notum bara smurolíu til matargerðar og djúpsteikingar í framtíðinni enda er hún ódýrari en matarolían sem þeir nota í dag.
Eða hvað?
|
Segir iðnaðarsaltið ekki hættulegt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Már 2010: Kemur ekki til greina að þiggja launahækkun
12.1.2012 | 11:01
Maðurinn heldur greinilega að fólk sé svo gjörsamlega ónýtt í höfðinu að það muni enginn eftir því sem þegar hann hafnaði launahækkuninni.
Á pressunni er hægt að lesa nánar um þetta.
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/mar-2010-kemur-ekki-til-greina-ad-thiggja-launahaekkun---mar-2012-i-mal-vid-rikid-til-ad-fa-launahaekkun
Þegar menn haga sér með þessum hætti á að reka þá úr starfi með það sama. Siðferði þeirra er ónýtt með öllu.
|
Már í mál við Seðlabankann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um langtímaminni og staðreyndir.
9.1.2012 | 10:43
Eigum við eitthvað að ræða 18 ára valdatíð sjálfstæðisflokksins og afleiðingar þeirra ára?
Held að SUS ætti að einbeita sér að staðreyndum í stað þess að ausa skít og drullu í allar áttir. Ég er sannfærður um að Sjálfstæðisflokkurinn hefiði ekki náð neitt betri árangri nema síður sé í endurreisninni og sennilega væru helmingi fleiri flúnir land væru þeir við völd.
Það er ömurlegt að sjá þá kynslóð sem á að taka við stjórntaumunum í framtíðinni haga sér með þessum hætti og hreinlega til skammar fyrir það unga fólk sem er í háskóla, að það er ekki meira hugsandi en raun ber vitni nema þetta sé það siðferði sem fyrir þeim er haft, en það er að mínu mati enn verra.
Það er ljóst að þarna þarf rækilega að taka til.
|
Landflótti áfellisdómur yfir ríkisstjórninni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Er ekki komið nóg sjalla-andskotar?
6.1.2012 | 10:42
Hvað í motherfokking anskotanum er að ykkur sjálfstæðis-aumingjarnir ykkar? Væri ekki nær að líta í eigin barm og skoða hvernig málum er háttað hjá ykkur sjálfum?
Þið ræflarnir gerið ekkert nema rífa kjaft um hvað allt sé ómögulegt á allann hátt hjá núverandi stjórnarflokkum en komið þið með einhverjar tillögur til úrbóta eða berið fram hugmyndir hvað mætti gera til að laga ástandið annað en að einkavæða alla hluti?
Við sáum hverju einkavæðingin skilaði okkur undir ykkar stjórn og haldið þið virkilega að það sé lausnin að gera það aftur? Haldið þið virkilega að fólk sé svo innilega heimskt að trúa lygaþvaðrinu í ykkur?
Þá eruð þið heimskari en ég hélt.
Reynið nú að drullast til að koma með tillögur að viti í stað þess að rýna á flísina í augum núverandi stjórnar meðan þið eruð blindaðir af bjálkahrúgunni í eigin glyrnum. Takið svo til í ykkar siðferðislega ranni því það er eins og að horfa ofan í andlega rotþró sem aldrei hefur verið tæmd.
|
Segir Jóhönnu ófæra um að leiða Samfylkinguna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Eitthvað latur við þetta.
16.11.2011 | 16:01
Ubuntu 11.10
16.11.2011 | 14:54
Stór og mikil vonbrigði með þetta stýrikerfi.
Sjá nánar á http://linuxvefurinn.is/news.php?readmore=31
Framtíðarfrétt vegna reglugerðar um gjaldeyrishöft.
8.6.2011 | 06:47
12 júní 2013.
Víkingasveit lögreglunar ásamt gjaldeyirsdeildinni réðust í gærkvöld inn á heimili fólks á sjötugsaldri sem voru nýkomin til landsins eftir ferðalag um Evrópu og handtekin.
Ástæða handtökunar var sú, að þau höfðu í fórum sínum 23 evrur og 50 cent sem þau ekki skilað til fjármálastofnunar sem veitir gjaldeyri viðtöku og verða þau leidd fyrir dómara í dag en þau geta átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi verði þau fundin sek og til greiðslu allt að tveggja miljóna króna sekt auk sakakostnaðar.
UPPFÆRT 13 júní 2013
Réttað var yfir hjónunum nú í morgunn og þau bæði dæmd í 18 mánaða fangelsi óskilorðsbundið vegna evrana 23,50 sem þau höfðu ekki skilað af sér til viðeigandi stofnunar. Auk þess var þeim gert að greiða allan sakarkostnað auk sektar upp á rúmlega 3,8 miljónir.
Þau hafa ákveðið að áfríja dóminum og tekur hæstiréttur málið fyrir innan tveggja mánuða.
23. Júlí 2013.
Hæstiréttur tók í dag fyrir mál hjóna á sjötugsaldri sem í júní voru handtekin á heimili sínu af víkingasveit lögreglunar ásamt gjaldeyrisdeild hennar og var niðurstaða hæstaréttar að þyngja bæri dómin yfir hjónunum þar sem þau hefðu sýnt einbeittan brotavilja og sæu ekki eftir gerðum sínum. Þyngdi hæstiréttur dómin í hámarks refsingu, 2. ára fangelsi óskilorðsbundið og hækkaði sektina sem þeim ber að greiða upp í 5,2 miljónir auk sakakostnaðar.
Í viðtali við hjónin kom fram að þau hafi ákveðið að fara með málið fyrir mannréttindadómstól Evrópu og vinnur lögmaður þeirra nú í málinu.
Er hann,,,,,
21.4.2011 | 13:52
|
Þykjast hafa sigrað eigin grýlu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vantar töluvert í þessa frétt.
9.6.2010 | 06:33
Þarna vantar nú töluvert mikið í fréttina, því það var talað um það í fréttum í gær, að það á að lækka barnabætur líka umtalsvert, fækka skólum og sameina minni skóla við þá stærri, skera niður í heilbrigðiskerfinu og það sem mér fannst nokkuð merkilegt, hvetja almenning til að vinna meira til að auka skatt-tekjur ríkisins.
Sjálfur er ég að vinna 12 til 14 tíma á dag fimm daga vikunnar og kæri mig ekkert um að vinna meira en það. Fjölskyldufólk vill ekki þurfa að vinna meira en það þarf til að geta átt tíma með maka og börnum í stað þess að vinna myrkrana á milli eins og tíðkast í ónefndu landi þar sem fjölskylur sjást varla nema í sumarfríum og stórhátíðum.
Hjó sérstaklega eftir því í fréttinni í útvarpi í gær þar sem var talað við unga konu og beindi hún orðum sínum til Forsætisráðherra Dana og sagði að hann ætti að prófa að lifa af lægstu launum eða framfærslu frá ríkinu áður en hann tjáði sig um hluti sem hann greinilega hefði ekki hundsvit á og bætti svo við að það væri nær að skera niður hjá þeim sjálfum sem hæst hefðu launin og sponslurnar áður en það væri ráðist á þá sem síst gætu varið sig.
Það má því segja að þjóðin logi af reiði út í stjórnvöld í niðurskurðarmálum og maður heyrir það á fólki sem maður er í daglegum tengslum við í vinnunni, að það er reitt stjórnvöldum hér í Dk og vill að farnar verði aðrar leiðir í ríkisfjármálum en að skera niður í velferðarkerfinu.
Það má að lokum bæta því við, að eftir að hafa búið hér í tæp þrjú ár, þá er maður farinn að sjá að velferðarkerfið hérna í dk er lítið skárra en á íslandi og að mörgu leiti verra. Eini plúsinn er sá, að maður borgar ekki fyrir að fara til læknis hérna eða í rannsóknir.
Launin eru ekkert sérstök fyrir ófaglærða, leiga á húsnæði er há og matarverð hátt. Allt sem mögulega gæti talist sem lúxus er skattlagt til helvítis og lengra og sem dæmi má nefna bíla, mótorhjól og afþreyingu.
Þó tún sýnist grænt þegar maður horfir á það yfir lækinn, þá liggur sama sinan undir því og þeim bakkanum sem maður stendur.............
|
Danir mótmæla niðurskurði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Áhugamaður spáði fyrir um gosið þrem tímum áður en það hófst.
21.3.2010 | 09:54
Í þessari umræðu má lesa um aðdraganda gosins í Fimmvörðuhálsi þar sem ungur áhugamaður spáir fyrir um gosið þrem tímum áður en það hefst meðan sprenglærðir jarðfræðingar voru nýbúnir að halda því fram að ekki væri mikil hætta á gosi.
Innleggið sem um er að ræða má sjá á meðfylgjandi mynd en með því að smella á hana má sjá hana betur..
|
Gossprungan gæti lengst |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

skagstrendingur
gattin
eirag
elin
offari
sigurjon
lemon
svarthamar
elfur
blackink
ktomm
larahanna
wonderwoman
saemi7

