Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Hvað má ég koma með margar danskar krónur á þetta skítasker?

Ætli maður skilji ekki dönsku krónurnar eftir heima þegar maður kemur til landsins því þær verða sjálfsagt hirtar af manni af tollinum enda skilst mér að erlendir gjaldmiðlar séu hið svæsnasta fíkniefni á íslandi í dag.

Tek bara með mér græðlinga.......

 

PS:  Fjandinn hirði þetta handónýta djöfulls bloggkerfi sem virkar ekki nema endrum og sinnum.


mbl.is Herða á gjaldeyrishöftin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri ágætt ef þetta bloggkerfi væri ekki í tómu tjóni.

Fimm sinnum þurfti að nota F5 takkann til að geta skrifað þessa færslu og verður gaman að sjá hversu oft þarf að fara fram og til baka áður en hægt verður að vista þessa færslu.

Þetta kerfi er til háborinar skammar fyrir mbl eins seinvirkt og böggað það er orðið.

Er ekki komin tími til að laga þetta fjandanns rusl?


mbl.is Færslur á blog.is sendar á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farðu nú að þegja gerpið þitt.

Það er alveg magnað hvað þetta gerpi getur endalaust verið að þenja sig núna þegar ,,flokkurinn" er ekki við stjórnvölin.  Annað en áður var þegar þetta kvikindi sagði ekki eitt einasta orð.

Stundum betra að þegja Birgir og vera talin heimskur heldur að opna munninn og taka af allan vafa þar um, en við það hefur þú verið einstaklega duglegur.

Farðu nú að halda kjafti drengauli.


mbl.is Segir ummæli forsætisráðherra misvísandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreytt bloggkerfi og komið að fótum fram.

Ástæða þess að ég hef ekki nennt að blogga hérna er vegna þess að þetta kerfi er orðið of þungt og svifaseint.
Það er nánast undantekning ef síða kemur upp ef maður smellir á hana, venjulega kemur bara hvítur auður skjár eftir hálfa til eina mínútu. Að vísu dugar að ýta F5 takkann til að fá hana upp en það getur þurft tvö til fimm skipti til.
Sama er að segja um athugasemdakerfið.  Maður skrifa athugasemd og ýtir á senda en eftir hálfa til eina mínútu fær maður hvítan auðan skjá.  Þá er það F5 og enter til að resend message.  Dugar í þriðja til sjöunda sinn ef maður er heppinn.
Að senda inn færslu er EKKI gaman.  Maður skrifa færslu og ýtir á Vista og birta og svo bíður maður trommandi í korter án þess að nokkuð gerist.  Jú það hringsnýst merki og fyrir aftan það stendur skýrum stöfum að verið sé að vista færsluna.  Aldrei kemur upp að vistun sé lokið og færslan birt.  Þá smellir maður á nafn bloggsins, í þessu tilfelli keli.blog.is og athugar hvort eitthvað hafi komið inn.  Það er ekki og þá bakkar maður með viðkomandi hnappi og reynir síðan aftur að vista og birta færslu.  Þetta þarf kanski að endurtaka allt að fimm sinnum áður en færslan birtist.

Svona böggar og vesen eru ekki bjóðandi manni og ég er hættur að nenna að blogga hér nema í algerri neyð og veit um fleiri sem þola ekki þetta vesen.
Sama er með athugasemdir.  Ég nenni ekki að kommenta hjá fólki út af veseninu og tímanum sem þetta tekur.

Mín niðurstaða er sú, að þetta kerfi er að drulla algerlega á sig.  þar að auki fer alveg gífurleg bandvídd í allt þetta ógeðslega flash auglýsingafargan sem hreinlega drepur alla vafra og tölvur á stuttum tíma.
Ég segi bara goðunum sé lof fyrir Logatófu og AdBlock sem gerir mér kleyft að losa mig við allar auglýsingar eins og þær leggja sig.

En það breytir því ekki að þetta bloggkerfi er að skíta algerlega á sig.


mbl.is Færslur á blog.is sendar á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband